HRAFNKELL TILNEFNDUR TIL VERÐLAUNA FYRIR AUGLÝSINGAHLÉ BILLBOARD
Verk Hrafnkells Sigurðssonar, Upplausn, var fyrir valinu fyrir Auglýsingahlé Billboard 1. -5. janúar 2022 og hefur hann nú verið tilnefndur til Íslensku myndlistarverðlaunanna af því tilefni.
„Það er mat dómnefndar að með því að nýta auglýsingaskiltin hafa Hrafnkell og fleiri opnað nýja leið til að miðla myndlist en Hrafnkell sýni líka að skiltin eru ekki bara eins og fletir til að fylla út í, heldur er hægt að nýta þau sem miðil með öllu sem tæknin býður upp á og koma skilaboðunum úr sýningarsalnum út í hversdagslegan veruleika okkar þar sem við þurfum mest á þeim að halda,“ segir í rökstuðningi dómnefndar.” (úr grein Fréttablaðsins: frettabladid.is/lifid/tilnefningar-til-islensku-myndlistarverdlaunanna/)