LIST Í ALMENNINGSRÝMI
Billboard, sem rekur auglýsingaskjái í strætóskýlum og við gatnamót á höfuðborgarsvæðinu, efndi í haust til opinnar samkeppni um myndlistarverk í almenningsrými í samstarfi við Y gallery og Listasafn Reykjavíkur. Dagana 1.–5. janúar 2022 verður Auglýsingahlé á yfir 350 stafrænum flötum Billboard um allt höfuðborgarsvæðið. Þessi tími verður helgaður sýningu á nýju verki eftir myndlistarmanninn Hrafnkel Sigurðsson sem valinn var úr hópi yfir 50 umsækjenda.
Reikna má með að yfir 80% höfuðborgarbúa muni sjá verk Hrafnkels dag hvern.
Listamaðurinn fær 1.000.000 kr greiddar fyrir verkið sem verður að sýningartíma loknum gefið í safneign Listasafns Reykjavíkur. Jafnframt er stefnt að því að verkið verði áfram sýnilegt í almenningsrými í borginni að loknu Auglýsingahléi Billboard.
Verkið verður sýnt á yfir 350 skjáum um alla borgina, bæði skjáum í strætóskýlum og stórum skjáum (6x4m) við fjölfarnar götur.
Valnefnd var skipuð skipuð fulltrúum frá Y galleríi, Listasafni Reykjavíkur, Billboard og SÍM , þeim Sigurði Atla Sigurðssyni, Leifi Ými Eyjólfssyni, Jóni Felix Sigurðssyni og Elísabetu Stefánsdóttur.
Hrafnkell lýsir verkinu, sem hann kallar Upplausn/Resolution, svona: “Verkið er abstrakt, það er ekki beint sýnilegt samhengi við umhverfið, það fer út úr öllu samhengi. Það er aftengt heiminum eins og við þekkjum hann”. Hrafnkell segist fara þannig inn í tómið, vinnur með pixel, ljósmynd og himingeiminn og vinnur myndir þar sem tæknin endar; “þú kemst ekki lengra út í geim. Myndirnar eru af vetrarbrautinni, þar sem ég fer inn í þá mynd og lengra en það en fer svo ennþá lengra”. Hrafnkell lýsir þessu eins og stafrænni náttúrutengingu, stafrænan skjá sér hann sem algjöra andstæðu við náttúruna, en hér er Hrafnkell búinn að tengja náttúruna við skjáinn.
Verkefnið er frábær vettvangur fyrir myndlist í almenningsrými. Því er ætlað að lýsa upp skammdegið og gefa borgarbúum tækifæri á að njóta listar um alla borgina.
Auglýsingahlé Billboard 2023 Fyrstu 3 daga ársins stendur Billboard að listsýningu á öllum sínum stafrænum skjáum sem eru nærri 400 talsins. Listamaðurinn er Sigurður Ámundason og sýnir hann fjölbreytt verk og nefnir sýninguna Rétthermi. Þetta er í annað sinn sem Auglýsingahlé Billboard fer fram í byrjun árs.