Þann 1. júlí 2016 kveiktum við á fyrsta LED skiltinu okkar — og reyndar voru þau tvö. Annað við Gullinbrú og hitt við gatnamót Grensásvegar og Miklubrautar. Minni skilti voru gangsett við Sæbraut skömmu síðar.
Í apríl 2017 fóru fimm LED skilti upp í Kópavogi, þrjú við Fífuna og tvö við Lindir. Sama ár bættust við tvö skilti á Selfossi, beggja megin þjóðvegar 1. Í árslok keypti Billboard fyrirtækið Dengsa ehf., sem hafði sett upp og þjónustað flettiskilti um árabil.
Á árunum 2018 og 2019 var efnt til samstarfs við fjölmarga eigendur flettiskilta um frekari LED væðingu þeirra. Voru þá sett upp skilti við Hilton á Suðurlandsbraut, Sprengisand við Reykjanesbraut og víðar.
Sumarið 2018 var samið við Reykjavíkurborg til 15 ára um rekstur biðskýla strætisvagna í borginni. Þar var gert ráð fyrir þjónustu á 210 biðskýlum, auk 50 auglýsingastanda sem fyrirtækið hefur leyfi til að setja upp í borginni. Í kjölfarið var samið um afnot og sölurétt auglýsinga á eldri skýlum á öllu höfuðborgarsvæðinu ásamt yfirtöku á þjónustusamningum við Garðabæ, Hafnarfjörð, Seltjarnarnes og Kópavog.
Í ársbyrjun 2019 var samningur gerður við Mosfellsbæ um rekstur átta biðskýla í bænum.
AUGLÝSINGASKILTI UM ALLT HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
- 37 Stórir LED skjáir
- 385 LED skjáir í biðskýlum og á stöndum
- 139 m² Stærsti auglýsingaveggur Íslands við Hamraborg